Fáránlegt

Þeir sem eru með lánin sín í frystingu eru í raun að borga af lánunum með lántöku. Allt kostnaður við frystingu leggst aftan við lánið. Þess vegna ættu allir þeir sem eru með lánin sín í frystingu að fá vaxtabætur eins og þeir sem borga af lánunum sínum t.d. með yfirdrætti eða námslánum.
mbl.is Sumir gætu misst allar vaxtabætur
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Mikið er ég ánægður

Líst rosalega vel á Sjálfstæðisflokkinn í Grindavík. Magnús í fyrsta og Vilhjálm Árnason í annað sætið.
mbl.is Sækist eftir 1. sæti í Grindavík
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Til hamingju með nýja starfið!

Vonandi er þetta byrjunin á farsælu og ánægjulegu starfi.
mbl.is Davíð og Haraldur ritstjórar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

KR-ingar í vandræðum í Garði

Víðir átti fín færi sem nýttust ekki sem skildi og KR-ingarnir fengu leik sem þeir gleyma ekki í bráð.

 Tæknilega séð vann Víðir.


mbl.is Tíu KR-ingar lögðu Víðismenn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hvar er endurnýjunin ?

Er ekki kominn tími á að breyta um fólk á alþingi ?

Hendum gömlu tuskunum ! 


mbl.is Ingibjörg býður sig fram
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Enn eitt klúðrið hjá lélegri ríkisstjórn !

Við skulum reyna að ræða þetta málefnalega. Seðlabankastjórarnir verða látnir fjúka án ástæðu, án þess að þeir brjóti af sér í starfi. Í stað þeirra verður ráðinn bráðabirgðaseðlabankastjóri þangað til nýr seðlabankastjóri verður ráðinn. Hvaða rugl er það?

Bráðabirgðabankastjórinn á varla eftir að geta komið sér inn í starfið áður en nýr bankastjóri tekur við. Hvað á það eftir að gagnast þjóðinni? Ný ríkisstjórn er bara að gera málið verra með þessu. Það hefur enginn getað sett út á störf Davíðs Oddssonar sem seðlabankastjóra og svo er hann látinn fjúka. Fyrir hvað? Bara til þess að fyrrverandi stjórnarandstaða geti hefnt sín á honum? Er þetta eina málið sem nýja ríkisstjórnin ætlar að beita sér fyrir á þessum örfáu dögum sem þeir hafa til umráða? Á ekkert að gera fyrir fólkið í landinu (mér finnst það að reka Davíð Oddsson ekki gagnast fólkinu í landinu!)?

En eins og staðan er orðin í dag þá vona ég að Geir Haarde sækji um starf seðlabankastjóra !


mbl.is Seðlabankafrumvarpið samþykkt
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hvað kosta nýjir embættismenn ?

Önnur hver frétt hérna er um nýja ráðherra nýjar stjórnir í fjármálaeftirlit og nýja seðlabankastjóra. Það sem ég vil fá að vita er hvað kostar það þjóðina að ráða nýtt fólk í öll launahæstu embætti landsins í 80 daga ? Það er nefnilega næsta víst að ríkisstjórnin 2009-2012 reki allt þetta lið og ráði nýtt.

Ekki byrjar þetta vel hjá nýju ríkisstjórninni að ætla henda milljörðum í starfslokasamninga og ráðningarsamninga og svo fleiri starfslokasamninga.

Þarf ég nokkuð að minna á að þetta er minnihlutastjórn sem starfar ekki í umboði þjóðarinnar heldur eingöngu í þágu lítils hóps kommúnista sem misnota potta og pönnur á Austurvelli. já og núna ríkisvaldið.

Biðstjórnin sem er við núna á að bíða með allt sem hún mögulega getur en ekki gera það sem hún heldur að þjóðin vilji.


mbl.is Seðlabankastjórar víki
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Gauragangur á alþingi

Nú fyrst er það orðið slæmt  !

Minnihlutastjórnin heldur að hún sé við völd. Að hún sé að vinna í umboði þjóðarinnar en það er hreinn misskilningur hjá þeim.

Það sem þessi stjórn á að gera er að gera sem minnst frekar að eyða þessum vikum í að gera ekki illt verra.

Eftir að ég lagðist yfir ríkisfjármálin og skoðaði tölurnar get ég ekki betur séð en að það er enginn peningur til  til að standa vörð um heimilin og fyrirtækin.

Ætlar nýja ríkisstjórnin að fara að nota peninginn sem við fengum lánaðann hjá IMF ?


mbl.is Slá skjaldborg um heimilin
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Epic fail

Byrjunin á endalokunum !

Vinstri stjórn í boði framsóknar !

Stjórnlaust partý í 83 daga !

Ætlar enginn að hringja í lögregluna að láta handtaka þetta lið ?

Óli R er örugglega ánægður núna hættur að djamma með útrásarvíkingunum en vinir hans eru komnir í nýtt hús, til að halda áfram !

 og allt án umboðs þjóðarinnar hver ætlar að borga fyrir 83 daga fyllerí í boði þjóðarinnar


mbl.is Framsókn ver nýja stjórn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Það var nú kominn tími til !

Er búinn að vera að velta þessu lengi fyrir mér og það er gott að vera búinn að fá einhver svör
mbl.is Leyndardómurinn bak við engisprettuplágurnar fundinn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband